Jarmundur husfreyja
Dýrðardagur í dag !!
Og viti menn ég er orðin sveitakerling! Húsfreyja á Hálsi í Fnjóskadal!
Og eg er að fýla það!
Og ég verð lifeguard í sundlauginni a Illugastöðum í sumar!
Og ég hlakka til sumarsins!
Og ég kvíði fyrir haustinu !því þá fer ég til Rvk Í nám..
Og ég hlakka samt líka til !
Og ég ætla að vera í fótbot með Draupni í sumar !
Og ég þoli ekki hvað bensínið er orðið dýrt!
Og þetta var helst í fréttum
YkKar Jarþrúður
2010 !!
Blogg hvað er það nú? Ég hef ekki bloggað í háa herrans tíð! Svolítið skondið að skoða þetta síðasta blogg það er orðið langt um liðið eða þegar ég fór fyrst með sigga uppí hinn fagra Brenniás. Þangað er maður nú búinn að koma þónokkrum sinnum og Sigurður minn meira að segja búin að kaupa eitt stykki kofa, rosalega krúttlegan! Þá verður hægt að dvelja þar í einhverjar nætur í einskonar sumarbústað það verður sko huggulegt!
En jæja já hvað er ég nú búin að vera að gera af mér þessa dagana. Mest lítið? Nei ég held nú síður. Mér tókst loksins að klára stúdentinn það er góð tilfinning! Sakna samt skólans svo mikið, hef þessa tilfinningu að ég þurfi að glósa og þess vegna er ég er blogga.
Ég er bara í fimmtíu prósent starfi á Hlíð og þar er ég búin að vera vinna síðan í nóvember 2007. Það er ágætt að hafa vinnu nú til dags, þó það sé ekki nema svona lítil vinna. Gamla fólkið er yndislegt, svona oftast, og ég er að vinna með yndislegum konum sem ég er farin að þekkja ansi vel.
Nú stend ég á þeim tímamótum að ég veit ekkert hvað ég á að taka mér fyrir hendur. Háskóli? Já mér langar að læra meira. Það er bara spurning hvað. Ég þarf að fara að kynna mér nám, og einnig hvort ég vil læra hér á Akureyri, Reykjavík eða kannski erlendis? Hvernig á maður að geta ákveðið svona lagað? Jújú ég er svo sem ekkert að stressa mig yfir þessu þetta kemur bara í ljós. Taka bara einn dag í einu held að það sé bara gott markmið. Svo er litla systir að öllum líkindum að útskrifast í vor úr menntaskólanum! Það verður nú gaman kannski maður byrji bara með litlu systir í háskólanámi?
Íslendingar eru að spila í þessum töluðu orðum á Evrópumótini í handbolta. Er að horfa með öðru auganu! Þeir eru ekki að standa sig neitt sérstaklega vel, ég held að það verði langt þangað til að þeir fari að gera eins gloríur og þeir gerðu a Ólimpýuleikunum.
Merkilegt samt hvað maður lifir sig inn í þessa leiki. Kannski vegna þess að maður er fyrverandi handboltakona en það má með sanni að segja að landsliðið á ríkan þátt í að hjálpa landsmönnum að jafna sig sálarlega og efla þjóðarstoltið eftir þetta hrikilega hrun í efnahagskerfinu!
Það er komið vor í loftið og daginn er að farinn að lengja og maður er bara í góðum gír. Þá er það bara að skipuleggja hvað maður tekur sér fyrir hendur í haust! Allt rosa spennandi !
Þetta er komið gott að sinni
Ykkar
Jarþrúður
Sveitasælan er besta sælan!
Góðan daginn góðir hálsar 
Það er allt ljómandi í fréttum hjá mér þessa dagana. Búin að ná öllum prófunum sem ég þreytti, nema á eftir að fá útúr Uppeldisfræðinni og síðan er það Landafræði prófið sem er á morgun. Það eru komnar þrjár 7 ur (íslenska,félagsfr,sálfr) og eina 10 u í Jóga. Frekar sátt með þetta hingað til 
Ég skrapp á Volare kynningu heima hjá Höllu síðastliðinn föstudag það var bara mjög fínt, fengum fótabað með dauðahafssalti very nice. Ég pantaði 7 jurta sturtusápu og aloe vera krem sem ég fæ á fimmtudaginn. Annars bara fín kynning í góðra vina hópi get ekki sagt annað. Halla mín og Jóa mín ég elska ykkur svaka svaka svaka mikið 
Var að vinna alla helgina, það tók verulega á sérstaklega þegar þetta voru morgunvaktir og þær eru þrisvar sinnum erfiðari en kvöldvaktir! en sem betur fer var ég á stórhátíðarkaupi á sunnudaginn og í gær mánudag svo það ætti að skila sér í budduna
Eftir mat hjá Gurrý á mánudagskveldið bauð Siggi minn mér uppí Bárðadal í sveitina á snjósleða, það var hreint út sagt geggjað. Fórum lengst inní heiði og alla leið á eyðibýlið Brenniás, sem Sigga finnst fallegasti staðurinn í heimi! En það var hætt búskap þar árið 1921 en þá brann torfbærinn og aldrei var komist að eldsupptökum
vá pælið í tilviljuninni að bærinn brenniás skyldi brenna, frekar undarlegt. En þetta er fallegur afskeftur staður og rómantískt og róandi að vera þarna með ástinni minni
Fékk að keyra nánast alla leiðina til baka, og vá það er erfitt en samt svo rosalega gaman, veltum einu sinni á hliðina en það blessaðist, jafn gaman ef ekki skemmtilegra en á hestbaki liggur við. Og nuna er eg að farast ur strengjum keyrðum í rúmlega 2 tíma og það er bara lúmskt erfitt.
Kíktum líka í fjárhúsin á nýfæddu lömbin þau eru dásamleg. Sveitin er best !
Best að fara að demba sér í lærdóminn, er að fara að vinna klukkan 3-7, náði að redda hálfri vakt til þess að hafa meiri tíma til að læra svo að best að láta hendur standa fram úr ermum.
útborgað á fimmtudaginn SWEEEEEEEEEET
síjah leiter..
Ykkar hamingjusama sveitakona 
Jarþrúður
1.maí 2008
Holy Moly
Jarþrúður is back on the blogg...
Ég og Siggi erum loks komin með internetið hérna heim þannig að ég fer að vera virkari að henda inn færslum. Þegar tími gefst það er að segja.
Það er allt gott að frétta af mér svo sem allt að gerast. Seinasti skóladagurinn búinn, Er að byrja í prófunum. Fer reyndar bara í 2 sem er rosa næs. Er í svo mörgum símatsáfongum, þannig að það er bara íslenska 503 á mánudaginn og síðan er það landafræði próf þann 14 mai.
Svo er ég bara að vinna á uppá elló, og verð þar líka í sumar. Það er fínt ætla líka að reyna að taka einhverjar næturvaktir.
Annars leggst sumarið rosa vel í mig, ef það ætlar einhverntíman að koma, fæ meira að segja tveggja vikna launað sumarfrí, væri unaðslegt að geta skroppið þá út í sólina, það er bara vonandi, vonandi.,
Jæja Siggi er búinn að svæfa best að leyfa honum að komast í tölvuna, hann er alveg óður..
Já ekki meira í bili, þarf að læra undir íslenskupróf, félagslegt raunsæi og nýrómantíkin bíða mín..
Hallelújah
Kv.Jarþrúður
Jólin 2007
eins og nánast altid 
Desember byrjaði með pompi og prakt..fór í prófin rosalega stressuð um að ég myndi ekki ná.. en annað kom á daginn, rústaði þeim með vinstri! he he segir maður svoleiðis.. nei kannski ekki.. ég allavega náði öllu 1 sexu, 2 sjöur,2 áttur og 1 nía

Yfirdráttur = ekki minn besti dráttur... og ekki orð um það meir!
Annars er ég rosalega ánægð með jólagjafirnar mínar en þær voru nú nokkrar og hér kemur smá upptalning:
Anna Systir: fjólubláan bol og MIKA diskinn !!
Jóa mjóa: geðveikan bol úr centro, fiðrilda órói og hálsmen og inneign í centro !!
halla: geðveikt glingur, hálsmen og eyrnalokkar !!
Helena: dvd mynd !!
Doddi: geggjað sætt jólahús með upplýsingu !!
Siggi: rosa fallegt hjartahálsmen, litla sæta eyrnalokka (all gold beibi) og reiðbuxur !!
Gurrý: dagkrem
Freysi og Natalía: digital myndavél ásamt minniskorti !!
Mamma og Pabbi: beckham ilmvatn, (sem ég ætla mér reyndar að skipta) rosa kósý náttbuxur, GEÐVEIKT fossil úr, jólafötin og nærfatarsett !!
Amma og afi kóp: Welda krem og handklæði !!
Amma Dilla: prjónaða vettlinga og 3000 kr !!
Þórdís og Co: svartar ermar !!
Hildur Vala og Co: sturtusett
Þorsteinn og Co: konfekt kassa
þá held ég bara að það sé upp talið .. rosalega ánægð með allt sem ég fékk.. þetta er reyndar svoldið mikið bara

Síðan vil ég þakka innilega fyrir öllum þeim sem sendu mér jólakort þau eru lika dásamleg og ekki mikið síðri í gjafirnar

Annars er ég bara vöknuð snemma í dag, skutlaði ástinni minni á flugvöllin hann er að fara að hjálpa kallinum pabba sínum með buisnessin.. en hann kemur aftur í kveld, sem betur fer

Jæja bið þá bara að heilsa í bili elskurnar.. hafið það sem best og hittumst hress á nýju ári, eða bara á Palla í sjallanum að fagna nýju ári !! get ekki beðið !!
ARRRRIAVADEDDDSJÍ

úr borg óttans:)
það er búið að vera rosalega gaman buin að versla mér smá og fara í skírnarveislu og hitta ömmu jónu og afa þorberg og önnu siggu og svonna
En ég er búin að fá útúr þeim fögum sem ég var að bíða eftir
SAGA 8
FÉL 8
SÁL 9
rosa ánægð með það.. annars fer að styttast óðfluga í jólin og það er bara komin smá tilhlökkun í mann
en núna get ekki sofnað því ég er með svo mikla vöðvabólgu og mér langar heim
en jæja þetta er líka seinasta nóttin hér
langaði bara að koma með smá fréttir
adios
heilladísirnar hliðhollar mér:)
Í dag er þessi dásamlegi miðvikudagur 12 desember og ég í hörku fíling mikið rétt.
Já sá dagur í dag er rosalega merkilegur því Jara er komin í jólafrí dásamlegt alveg hreint.Seinasta prófið í morgun: gekk eins og ég hafði vonað, sæmilega.
Já í dag er einmitt akkúrat 2 mánuðir síðan ég varð 19, styttist í tvítugsafmælið mitt. Það verður gaman.
Vonandi fer ég líka bráðlega að útskrifast. Allavega orðin stúdent í stærðfræði sem er hreint út sagt ÆÐISLEGT. einnig ensku og dönsku og svonna, á samt svolítið eftir.
Jæja um helgina var aðeins slett úr klaufunum, ég og sigurður erum orðin dugleg við að fá okkur í aðra tána, það nú svona annars slagið er það ekki bara? Rómea og Júlía var spiluð svona hundrað sinnum mikið gaman mikið grín.
Hmmm jamm svona er lífið bara allt að gerast hjá mér.
og viti menn, er komin með vinnu sem er bara snilld. uppá elló., byrja 20 des í 60% vinnu og er að vinna næstum alla hátiðsdagana sem þýðir bara money. Síðan lika vinna með skóla eftir áramót 30% það er nú bara fínt
Heyrðu næstu helgi það er að segja á föstudaginn ætlum ég siggi minn og elísabet sól að fara suður... það verður geðveikt að komast aðeins og dekra aðeins við sig, kíkja í búðir ef ég þekki mig rétt.. toysourus er víst ný leikfangabúð sem elísubet langar að kíkja. Jamm síðan er það skírn hjá Bergvin bróðir sigga, verið að skýra nýfæddu stúlku hans, elska skírnir,, eða bara elska að fara í kirkju.. það er eitthvað við það að fara í kirkju, það veitir mér innri frið.
Jæja svona lítur einkuninar mínar fyrir þessa önn það sem komið er a.m.k;
ÍSLENSKA: 7
ENSKA 503: 7 (STÚDENT)
STÆRÐFRÆÐI 262: 6 (STÚDENT)
SÁLFRÆÐI 103: ?
SAGA 313: ?
FÉLG 203: ?
bíð bara spennt... að komast suður og kaupa mér jóladressið.
VIÐ ÆTLUM AÐ KEYRA Á LÚÐVÍK FLIPPER BRJÁNSSYNI ÞAÐ VERÐUR SVO GEÐVEIKT GAMAN, ÞAÐ VERÐUR FYRSTA FERÐIN HANS VONANDI MUN ÞAÐ GANGA VEL;*
siggi ætlar að keyra, held það sé best
Bið að heilsa í bili, búin að kaupa allar jólagjafir og skrifa öll jólakort og bara næstum allt klárt fyrir jólin..
ARIVADETJSÍ
prófin nálgast.. og jólafríið:)


þá fer bara að styttst óðfluga í jólin.. og prófin.., fer í 3 próf, stærðfræði núna á mánudaginn, síðan íslensku á miðvikudaginn og síðan er það seinasta prófið mitt á miðvikudaginn 12. des og það mun vera félagsfræði. Var í þremur próflausum áföngum ensku,sögu og sálfræði. Fékk að sleppa við lokaprófið í sálfræði því ég var með svo góða mætingu og vetrareinkunn. Þannig að ég er allavega buin að ná sálfræði, sennilega líka ensku og sögu en það verður bara að koma í ljós.

Jæja síðan er ég búin að vera að sækja um vinnu í jólafríinu, allt að gerast fæ svar í næstu viku hvort ég fæ vinnu sem er ég bara nokkuð spennt fyrir. Wish me luck.
Annars eru það jólagjafir og jólakort, mun senda um það bil 30 jólakort og gefa nokkrar jólagjafir ef að fjárhagir leyfa.
nei þið fáið nú eitthvað frá mér, engar áhyggjur
Þessi helgi mun fara í það meira og minna að læra undir próf. Ekkert djamm þessa helgi né næstu. Maður lifir það nú alvega af. í gærkvöldi skrapp ég til höllu og jóa var þar ásamt kút litla og við vorum eitthvað að dandalast eins og okkur einum er lagið. Síðan bauð Siggi mér til sín sagðist vera buin að leigja mynd handa mér.. við horfðum á hana og hún er án efa minnst rómantíska mynd í heimi.. Boise moi.. frönsk.. voðalega kósý veður úti samt sem áður.. held að ég sé að komast í jólagírinn.. nei ekki alvega strax það er nú bara 1 desember.. heyrðu árið 1918 fengu íslendingar fullveldi.. gaman af því.. var einmitt að skrifa ritgerð um það í sögu, sem ég fæ útúr núna seinna í desember.

Hmmm mamma búin að setja upp smá jólaskraut, það er nú bara gaman. Langar svo að byrja á jólakortunum og svonna en ætla að láta það bíða þangað til prófunum lýkur.. forgangsraða, forgangsraða

ég veð svo úr einu í annað.. held ég ætti bara að fara að einbeita mér að stærðfræðinni.. síðan er ég að fara með sigga og elísubet dúllu niðrí bæ og sjá þegar það verður kveikt á jólatréinu

Au revoir..Á bientót... er btw að fara í frönsku eftir áramót.. mama mia...
Kveðja
Jarþrúður einbeitta
allt fyrir ástina .. ;*
ég elska nýja palla diskan;* anna besta systir reddaði mér honum, er reyndar að gera sigga brjálað hann vill bara van halen thank you very nice..
Síðastliðin vika var þvílíkt stressandi.. stærðfræðipróf..úff ég veit ekki hvernig mér gekk, reyndi mitt besta, buin að vara í aukatímum hjá hilmari.. fannst ég voða klár.. síðan þegar í prófið kom þá stressaðist ég þvílíkt upp... þóttist allt í einu ekki muna þessa D formúlu.. en jæja ég gerði mitt besta...hlýt að ná þessu.. æji vona það að minnsta kosti. Síðan var skilaverkefni í sögu sem gekk reyndar vel, ekkert stress meðfylgjandi því þannig séð..var lika að vinnu með svölu.. oh snillingur..
Síðan var það þetta blessaða málþing í sálfræði ég var með efu og áttum við að flytja fyrirlestur um taugasálfræði.. ég skalf af stressi, vissi ekki hvernig ég átti að vera, náði samt að tauta þessu út úr mér ágætlega.. shaking hands.. ég er nú ekkert feimin að tala fyrir framan marga, en eitthvað var það.. æj ég vona að ég og eva fáum ekki mínus fyrir að vera 3 min undir tíma,. pössuðum okkur allavega ekki að vera yfir þar sem hun var buin að undistrika það við okkur margsinnis.. en þetta gekk þetta gekk.. er núna að drepast í herðunum úr vöðvabólgu..
jÁ já síðan komin langþráð helgi, nei á fimmtudaginn datt ég í það.. hehe það var gaman ég og jóa að hafa það kósý.. Jóa pornodog? ;)
Síðan á föstudaginn var það ég og jóa að detta svona ferlega í það en það endaði með því að jóa fór eitthvert út.. en ég var svo lúin að ég fór bara að kúra hjá sigga mínum.. svaf síðan úr ohhh það var svo gott
jájá laugardagsmorguninn var ég að læra siggi fór í vinnuna kl.11 ég var geggjað dugleg síðan fórum ég og anna í bónus, elduðum síðan lasagna og buðum sigga í mat hann rétt skrapp úr vinnunni.. og viti menn honum fannst þetta geðveikt gott.. hver er að segja að ég kunni ekki elda ? og líka svona góðan mat:) við erum svo myndarlega systurnar..
Heyrðu síðan var það um kvöldið sem að ég og jóa og sóley duttum í það, þær komu reyndar ekki fyrr en eitt, eitthvað pirraðar elskurnar en það var allt í lagi..ég ætlaði að spila palla handa stelpunum en það var nú mjög fljótlega skipt um tónlist.. jæja síðan fórum við niðrí bæ á kaffi ak, jóa fór heim með arnóri..sóley fór inná kaffi ak, en hun fór fljótlega heim, ég týndi henni alltaf... það var rosa stuð.. dansaði við Karen og Ingu við umbrella.. ógleymanlegt:)
Síðan var það helvíti magnaður snúningur með stebba og síðan dansaði siggi við mig undir lokin, og jú siggi þú kannt alveg að dansa, það bara hefur hver sinn stíl.. ég er nú ekkert rosalega góður dansari sjálf.. fékk að finni fyrir því á benidorm þar sem stelpurnar gerðu endalaust grín af hip hop dansinum mínum, ætlaði að dansa eins og svörtu konurnar en það misheppnaðist.. jæja hehe bara fyndið að hugsa til þessar ferðar HOLY MOLY...:)
Heyrðu síðan var rabbað við hvernig náungann og eftir öðrum.. siggi keypti burger, skiptum honum á milli.. sætt? síðan þegar við vorum að borða fékk ég þennan hræðilega hiksta og hló í hvert einasta skiptið .. æj þetta var spes.. aldrei fengið svona hiksta sem hefur endst svona lengi.. örugglega 2 tíma.. síðan hvarf hann sem betur fer.. en ég var ekkert pirruð hló bara og siggi lika, ég er með strengi í maganum.. já þannig fór um sjóferð þá... :)
ma&pa fóru suður um helgina á árshátið kpmg skemmtu sér vel, enda eiga þau það skilið elskurnar bestu foreldrar í heimi;* pabbi fékk jólagjöf frá mömmu rosalega flottan leðurfrakka sem kostaði jáá helling.. hehe
En já síðan á Siggi elskan afmæli á morgun..hann ætlar að bjóða mér út að borða á Friðrik fimmta
ég verð að kaupa eitthvað sætt handa elskunni.. veit bara ekki hvað heheEn ætla að fara að fá mér pitsu.. svona til tilbreytingar.. ermm..
Kveð að sinni - hafið það gott
Ykkar Jara
